Dúfnaveisla 2012.

Þetta er gamla spjallborðið. Þú getur einungis lesið og gert leit í gömlum umræðum, en ekki er hægt að breyta eða svara þeim. Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta gæti valdið. Þú getur nálgast nýja spjallborðið hér
Notandi Umræða Dagsetning
Artec Dúfnaveisla 2012 var formlega sett af stað Sunnudaginn 1 júlí með að fulltrúi frá Skotvís (Indrið R. Grétarssoni), Umhverfisstofnun[Steinar Rafn Beck] og Skotfélagi Akureyrar ( Finnur Steingrímsson) skutu á nokkrar dúfur á Sportingvelli Skotfélags Akureyrar.

Dúfnaveislan er samstarfsverkefni Umhverfisstofnunar (UST), Skotveiðifélags Íslands (SKOTVÍS), ýmissa félaga sem reka skotvelli auk styrktaraðila. Sjá nánar á Skotvis.is

Tilgangur Dúfnaveislunnar er að hvetja veiðimenn um land allt til að kynna sér þá aðstöðu sem skotvellirnir hafa uppá að bjóða og stunda reglulegar skotæfingar áður en veiðitímabilið hefst og undirbúa sig eins og best verður á kosið.

Samhliða Dúfnaveislu þá er komið í gagnið Dúfnatal á en það er vefforrit þar sem hægt að skrá niður þann fjölda dúfa sem maður hittir þegar maður fer á völlinn og halda þar með einskonar bókhald um skotfimina. Dúfnatal er öllum opið og hægt er að sjá nánari upplýsingar á Skotvellir.is

F/h Skotvís

Indriði R. Grétarsson
2012-07-14 19:32:35