spurning varðandi skammbyssu skotfimi

honda

Svör samtals: 35
Virk(ur) síðan: 23 July 2012

sælir nú hef ég áhuga á því að byrja að æfa mér á skammbyssu og er ekki viss hvar maður byrjar
þar sem ég þekki engan sem stundar þessa íþrótt er hægt að fá lánaða byssu í egilshöll?

hvernig fer maður að því að byrja í þessu verður maður að byrja á loftbyssu fyrst?

ég er með B leyfi búinn að vera með það í næstum 3 ár

Tags:
Skrifað þann 28 January 2013 kl 21:54
Sýnir 1 til 10 (Af 10)
9 Svör

Toxter

Svör samtals: 1
Virk(ur) síðan: 23 July 2012

Re: spurning varðandi skammbyssu skotfimi

Getur prufað að kíkja við hjá Skotfélagi Kópavogs í Digranesi. Þeir eru með skammbyssuæfingar á fimmtudagskvöldum. Þar voru til, síðast þegar ég vissi, bæði 22.cal skammbyssa og loftskammbyssur sem hægt var að leigja.

Skrifað þann 29 January 2013 kl 13:09

Þórir

Svör samtals: 74
Virk(ur) síðan: 23 July 2012

Re: spurning varðandi skammbyssu skotfimi

Sæll.
Endilega kíktu við í Digranesi á fimmtudagskvöldi - .22 æfing byrjar kl.19. Þar geturðu rætt við skotstjóra sem ætti að geta frætt þig um hvernig þú getur borið þig að. Klúbburinn á, í það minnsta, eina .22 markbyssu sem er lánuð til byrjenda og þeirra sem vilja prufa.
Skotfélag Kópavogs er afskaplega skemmtilegt félag, heimilislegt og margir til í að aðstoða þig. Meðlimagjald er sanngjarnt (miklu ódýrara en í SR) og æfingar eru innifaldar í árgjaldi.
Kv.
Þórir I.

Skrifað þann 29 January 2013 kl 16:02

harry123

Svör samtals: 147
Virk(ur) síðan: 30 September 2012

Re: spurning varðandi skammbyssu skotfimi

Ég hef líka áhuga á að prófa. Gæti verið að ég kíki líka við á fimmtudaginn.
Magnús Sigmundsson

Skrifað þann 29 January 2013 kl 16:26

honda

Svör samtals: 35
Virk(ur) síðan: 23 July 2012

Re: spurning varðandi skammbyssu skotfimi

En til þess að fá D leyfi þarf maður að vera búinn að skjóta ákveðið mikið með skammbyssu?

eða er nóg að vera virkur meðlimur í skotfélagi í 2 ár?

Skrifað þann 29 January 2013 kl 16:45

byssur info

Svör samtals: 931
Virk(ur) síðan: 23 July 2012

Re: spurning varðandi skammbyssu skotfimi

það er nóg að hafa verið virkur í skotfélagi í 2 ár, ekki hægt að gera þá kröfu að maður skjóti af skambyssu í 2 ár áður en maður má kaupaþær þar sem öll skotfélög bjóða ekki uppá skambyssur.

Skrifað þann 29 January 2013 kl 16:52

Þórir

Svör samtals: 74
Virk(ur) síðan: 23 July 2012

Re: spurning varðandi skammbyssu skotfimi

Við þetta má bæta að núna fer fram aðalfundur bráðlega og ef ég man rétt eru nýjir meðlimir teknir inn þá. Auk þess er hagstæðast að borga félagsgjöldin núna, en þá nær maður heilu ári. Get mælt með SFK - fínn klúbbur, heimilislegt og þægilegt.

Skrifað þann 30 January 2013 kl 9:16

honda

Svör samtals: 35
Virk(ur) síðan: 23 July 2012

Re: spurning varðandi skammbyssu skotfimi

takk fyrir öll svörin hlaðverjar

er opið hjá skotfélag kópavogs í kvöld sunnudag?

Skrifað þann 3 February 2013 kl 17:16

dgs

Svör samtals: 236
Virk(ur) síðan: 23 July 2012

Re: spurning varðandi skammbyssu skotfimi

Ekkert á sunnudögum

http://skotkop.is/images/stories/skotfelag/stundaskra_sfk.pdf...

Skrifað þann 3 February 2013 kl 17:28

honda

Svör samtals: 35
Virk(ur) síðan: 23 July 2012

Re: spurning varðandi skammbyssu skotfimi

ok takk.

Skrifað þann 3 February 2013 kl 17:35